Persónuvernd
Sparnaður ehf., kt. 570902-2450, Garðatorgi 7, 210 Garðabær, telur nauðsynlegt að safna og vinna með persónuupplýsingar um starfsmenn til að geta sinnt skyldum sínum sem vinnuveitandi og uppfyllt lögbundnar kröfur.
Hvað eru persónuupplýsingar?
Persónuupplýsingar eru hvers kyns upplýsingar sem rekja má beint eða óbeint til tiltekins einstaklings — t.d. nafn, kennitala, heimilisfang, netfang, símanúmer og aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.
Söfnun upplýsinga
Fyrirtækið safnar upplýsingum um starfsmenn svo sem nafni, kennitölu, heimilisfangi, netfangi, símanúmeri, viðveru, launum og samskiptum — í þeim tilgangi að uppfylla ráðningarsamninga, lögbundnar skyldur og lögmæta hagsmuni fyrirtækisins.
Miðlun til þriðja aðila
Sparnaður miðlar upplýsingum til þjónustuaðila (vinnsluaðila) á grundvelli formlegra vinnslusamninga sem takmarka notkun og tryggja öryggi. Í ákveðnum tilvikum kann að vera nauðsynlegt að miðla upplýsingum til þriðja aðila samkvæmt lagaskyldu, t.d. til skattyfirvalda.
Varðveisla
Fyrirtækið varðveitir bókhaldsgögn í sjö ár. Öðrum upplýsingum um starfsmenn er að meginstefnu til eytt tveimur árum eftir að starfsmaður hættir störfum.
Réttindi þín
Starfsmenn eiga m.a. rétt á að afturkalla samþykki, fá aðgang að upplýsingum, fá rangar upplýsingar leiðréttar, óska eftir eyðingu, takmörkun vinnslu, fá upplýsingar fluttar og leggja fram kvörtun til Persónuverndar.