Ágæti launagreiðandi

Bayern-Versicherung AG hefur stofnað Premium ehf. í samstarfi við Sparnað ehf. sem er umboðsaðili Bayern-Versicherung hér á landi. Tilgangur félagsins er skráning iðgjalda vegna lífeyristrygginga sem launþegar hafa kosið sem sinn viðbótarlífeyrissparnað fyrir efri árin. Iðgjaldareikningur og sjóðsnúmer er óbreytt, en það þarf að breyta upplýsingum um hvert skilagreinar eiga að berast.

Iðgjaldagreiðslur

Við höfum tekið upp nýtt kerfi til að halda utan um iðgjaldagreiðslur sem allflestir lífeyrissjóðir stéttarfélaga eru að nota. Með þessari ráðstöfun á að verða þægilegra að greiða inn iðgjöld þeirra starfsmanna sem hafa valið Bayern-Versicherung til að ávaxta viðbótarsparnað sinn á öruggan hátt.


Skilagreinar skulu berast til :

Premium ehf - Suðurgötu 10 - 580 Siglufjörður

Skilaðu með rafrænum hætti á netfangið skil@premium.is (*.txt *.xls *.xml)
Eða með faxi á númerið 412 2709


Iðgjaldareikningur : 0301-26-410807
Kennitala : 410807-8740
Sjóðsnúmer : 310


Ef einhverra upplýsinga er óskað þá vinsamlegast hafðu samband við okkur í síma 412 2700